Upplýsingar

- Sterkt sápa fyrir erfiðari þrif

Alkleen Liquid er háalkalískt hreinsiefni sem er er vatnsblendið en vinnur einstaklega vel á erfiðum óhreinindum í vinnslurýmum svo sem dýra og fiskifitu.

Alkleen Liquid er mjög sterkt hreinsiefni og getur hvarfast við léttmálma, svo sem ál, Zink og tin ef það er notað óblandið, þannig að varist að nota efnið óblandið, nema með sérstakri varúð.  Til þrifa þar sem ál og aðrir léttmálmum eru til staðar, notið Alkleen Safety Liquid.

Blandist 5 – 10% eða eftir þörfum og óhreynindum hverju sinni.

Efnið má bera á flötinn með kústi, úða því á flötin og láta liggja á sem og til notkunar með háþrýstidælum/kvoðukerfum.  Hægt er að auka kvoðuvirknina með Foam Agent.

PH Gildi:                13,0 óblandað

Áhættugreining:

  • Efnið er hættulegt við inntöku (H22)
  • Er ertandi fyrir augu (H36)
  • Hætta á alvarlegum augnskaða (H41)

Öryggisgreining

  • Ef efnið berst í augu, skolið strax með miklu vatni og leitið til læknis (V26)
  • Notið viðeigandi hlífðarfatnað og hlífðargleraugu / andlitsvörn (V36/39)
  • Geymið þar sem börn ná ekki til (V2)

 

Neyðarlinan; sjúkrabifreið, slökkvilið, lögregla:     sími: 112

Eiturefnamiðstöð Landspítalans, Reykjavík:         sími: 543-2222