Flugþjónusta
Flugþjónusta
Flugþjónusta
Skeljungur selur þotueldsneyti (Jet A-1) og flugbensín (Avgas 100LL) og er með þjónustu á flestum stærri flugvöllum landsins samkvæmt alþjóðlegum gæðastöðlum.
Á flugvöllunum í Reykjavík, Akureyri og Egilsstöðum eru báðar tegundir eldsneytis á boðstólum á venjulegum vinnutíma, en auk þess er unnt að semja um útkall. Á Keflavíkurflugvelli og á Höfn í Hornafirði er einungis selt þotueldsneyti. Almennur afgreiðslutími á flugvöllum er eftirfarandi.
Á Akureyri, Egilstöðum og Ísafirði er opið frá kl. 09:00 - 18:00 alla daga og á Reykjavíkurflugvelli er opið frá 06:30 - 18:30 virka daga og frá 07:30 - 19:30 um helgar. Utan opnunartíma reiknast útkallsgjald sem er 70.000 kr.
Á Reykjavíkur-, Ísafjarðar-, Akureyrar- og Egilsstaðaflugvelli er sjálfsafgreiðslubúnaður fyrir flugbensín þar sem handhafar viðskiptakorta Skeljungs geta afgreitt sig sjálfir hvenær sem er sólarhringsins.
AeroShell
Hágæða vörur frá AeroShell í netverslun Skeljungs
Verðlisti
Avgas 100LL
Flugbensín Avgas 100LL fyrir bulluhreyfla
| Staðsetning | Afgreiðsla |
|---|---|
| Reykjavik (REY) | 401.35 |
| Ísafjörður (ÍSF) | 424.75 |
| Akureyri (AEY) | 416.19 |
| Egilsstaðir (EGS) | 424.75 |
Jet A1
| Staðsetning | Kr./l. with VAT |
|---|---|
| Reykjavík (REY) | 302.93 |
| Ísafjörður (ÍSF) | 339.63 |
| Akureyri (AEY) | 316.83 |
| Egilsstaðir (EGS) | 339.63 |
| Höfn (HFN)* | 339.63 |
| Keflavík (KEF) | 302.93 |
Staðsetningar
| Staðsetning | Afgreiðsla | Sími |
|---|---|---|
| Keflavíkurflugvöllur (KEF) | EAK | 425 0750 |
| Reykjavíkurflugvöllur | Icelandair | 570 3030 |
| Hornafjarðarflugvöllur | Rafhorn ehf | 893 0693 |
| Egilsstaðaflugvöllur | Icelandair | 570 3030 |
| Ísafjarðarflugvöllur | Icelandair | 570 3030 |
| Akureyrarflugvöllur | Icelandair | 570 3030 |