Maxshine Air Blast Vacuum Gun er fullkomna leynivopnið til þess að tækla erfiðustu og fastgrónustu óhreinindin í teppum, sætum og mottum bílsins. Tækið tengist við loftpressu og notar öflugan, snúningsdrifinn loftþrýsting til þess að rífa upp sand, hundahár, ryð og kusk djúpt úr textíltrefjunum – á meðan innbyggða ryksugutengið sýður óhreinindin beint inn í ryksuguna þína.

Með þessari tækni þarftu ekki lengur að bursta teppin endalaust handvirkt. Tækið bókstaflega skýtur sandinum upp úr botninum svo auðvelt er að ná honum upp í einni umferð.

Helstu kostir og eiginleikar:

  • Tvíþætt virkni (Blástur & Sog): Snúningsloftstraumurinn lyftir sandi og drullu á meðan ryksuguviðbótin fangar það samstundis, svo óhreinindin þyrlast ekki um bílinn.

  • Fullkomið fyrir hundahár og sand: Engin önnur aðferð virkar eins vel á djúpt sitjandi Íslenskan sand og hundahár sem virðast fastgróin í teppunum.

  • Kemst í þröngustu kverkar: Frábært til að hreinsa á milli sæta, í hliðarvösum, í kringum gírstangir og á öðrum stöðum þar sem venjuleg ryksuguhausar komast ekki að.

  • Slitsterk og vönduð hönnun: Gert úr hágæða efnum sem þola mikið álag og daglega notkun á deitiling-verkstæðum.