Útgáfa á víxlum
Skeljungur hefur lokið sölu á óverðtryggðum víxlum
Skeljungur ehf. hefur lokið sölu á nýjum óverðtryggðum sex mánaða víxlum í flokki, SKELJUNG2612 með lokagjalddaga 10. desember 2026. Seldir voru víxlar að nafnvirði 1.520m.kr. á 8,84% flötum vöxtum.
Greiðslu- og uppgjörsdagur er fyrirhugaður miðvikudaginn 10. júní 2026.
Íslandsbanki hf. hafði umsjón með sölu og uppgjöri víxlanna.
Nánari upplýsingar veitir:
Þórður Guðjónsson forstjóri,
Tölvupóstur: thordur@skeljungur.is
