Traust samstarf fyrir góða þjónustu á Vestfjörðum

Skeljungur og Þrymur hafa skrifað undir nýjan samstarfssamning sem styrkir áfram gott og langvarandi samstarf fyrirtækjanna. Með samningnum verður Þrymur þjónustuaðili Skeljungs á Vestfjörðum og mun meðal annars taka þátt í dreifingu eldsneytis ásamt því að sinna þjónustu við viðskiptavini Skeljungs.

„Samstarfið við Þrym mun styrkja þjónustu okkar á Vestfjörðum og tryggja viðskiptavinum á svæðinu skilvirka og persónulega þjónustu. Þrymur hefur sterka stöðu í samfélaginu og djúpa þekkingu á þörfum atvinnulífsins, sem skiptir miklu máli fyrir Skeljung, “segir Ingunn Þóra Jóhannesdóttir, framkvæmdastjóri Rekstrarsviðs Skeljungs.

Í gegnum Þrym verður í boði heildstæð þjónusta Skeljungs, þar á meðal aðgengi að vöruframboði fyrirtækisins, svo sem smurolíum, hreinsiefnum, efnavöru og annarri rekstrarvöru.

Samstarf Skeljungs og Þryms markar mikilvægt skref í áframhaldandi uppbyggingu þjónustu á Vestfjörðum og er unnið með það að leiðarljósi að skapa áreiðanlegar, faglegar og skilvirkar lausnir fyrir fyrirtæki og rekstraraðila.