Tilkynning um stöðvun á eldsneytisdreifingu á Suðvesturhorninu vegna veðurs
Tilkynning um stöðvun á eldsneytisdreifingu á Suðvesturhorninu vegna veðurs
28. október 2025
Vegna þeirra erfiðu veðurskilyrða og víðtækrar ófærðar sem nú ríkir á suðvesturhorni landsins, hefur Skeljungur tekið þá ákvörðun að stöðva alla dreifingu á eldsneyti tímabundið.
Þær aðstæður sem nú eru uppi gera flutninga á eldsneyti ill mögulega.
Dreifing mun hefjast að nýju um leið og veðuraðstæður batna og samgöngur leyfa.
Við biðjum viðskiptavini okkar velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda og þökkum skilninginn á þessum óviðráðanlegu aðstæðum.
Kveðja Starfsfólk Skeljungs
