Skeljungur flytur starfsemi sína á Akureyri
Skeljungur flytur starfsemi sína á Akureyri
Skeljungur flytur starfsemi sína á Akureyri að Goðanesi 2, í sama húsnæði og systurfyrirtækið Klettur hefur nýlega tekið til húsa. Með flutningnum verða verslun og þjónusta samnýtt á einum stað, sem gefur tækifæri til að þjóna viðskiptavinum á Norðurlandi enn betur.
Nýja staðsetningin við Goðanes 2 er skref í uppbyggingu félaganna á svæðinu. Húsnæðið er rýmra og hentugra en fyrri aðstaða og mun gera félögunum kleift að bjóða upp á betri þjónustu og betri afkastagetu. Bæði félögin eru hluti af Styrkás samstæðunni og með því að samnýta aðstöðu og þjónustu á Akureyri er markmiðið að skapa betri upplifun fyrir viðskiptavini.
Við hlökkum til að taka á móti viðskiptavinum á nýjum stað.
