Skeljungur fær alþjóðlega vottun á lífeldsneyti
Skeljungur fær alþjóðlega vottun á lífeldsneyti
Skeljungur hefur hlotið ISCC vottun á lífeldsneyti, alþjóðlega viðurkenningu sem staðfestir að uppruni og sjálfbærni lífeldsneytisins sé rekjanleg í gegnum alla keðjuna frá framleiðslu til afhendingar.
ISCC (International Sustainability and Carbon Certification) er vottunarkerfi sem notað er víða í heiminum til að sannreyna sjálfbærni og rekjanleika í orkugeiranum. Vottunin þýðir að viðskiptavinir Skeljungs geta sannreynt hvaðan lífeldsneyti þeirra kemur og hvaða sjálfbærnieiginleika það hefur. Kröfur um rekjanleika og sjálfbærni lífeldsneytis eru að aukast, bæði hér á landi og á evrópska markaðnum, og ISCC vottunin gerir Skeljungi kleift að uppfylla þær kröfur og veita viðskiptavinum gögn í samræmi við alþjóðlega staðla og gildandi regluverk.
„Við sjáum vaxandi eftirspurn frá fyrirtækjum sem þurfa að geta sýnt fram á kolefnisspor sitt og gert grein fyrir því hvaðan lífeldsneyti þeirra kemur. ISCC vottunin gerir okkur kleift að svara þeirri þörf með gögnum sem eru í samræmi við alþjóðlega staðla og gildandi regluverk," segir Ingunn Þóra Jóhannesdóttir, framkvæmdastjóri rekstrasviðs hjá Skeljungi.
Til að hljóta vottunina fór ISCC-úttektaraðili yfir verklag Skeljungs, skráningu, innra eftirlit og hvernig rekjanleiki lífeldsneytisins er tryggður, allt frá móttöku vöru til afhendingar til viðskiptavinar. Skeljungur stóðst úttektina og hlaut vottunina að henni lokinni.
