Alþjóðlegur dagur umhverfisins

Alþjóðlegur dagur umhverfisins

Skeljungur fagnar Alþjóðlegum degi umhverfisins með fyrstu innkaupum á brúsa úr íslensku endurunnu plasti

Í dag, 5. júní, er Alþjóðlegur dagur umhverfisins og í ár beinist athyglin að plastmengun og skaðlegum áhrifum hennar á umhverfið. Af því tilefni tilkynnir Skeljungur um fyrstu innkaup sín á brúsum úr íslensku endurunnu plasti, framleiddum í Hveragerði hjá Pure North.

Brúsarnir eru framleiddir með 82% minna kolefnisspori en sambærilegir nýplastbrúsar, þar sem jarðvarmi og umhverfisvænir orkugjafar eru nýttir í stað hefðbundinna, orkufreka lausna. Þar að auki er plastúrgangur á borð við notað heyrúlluplast frá íslenskum bændum endurunninn og fær nýtt líf í stað þess að enda sem úrgangur.

Brúsarnir bera alþjóðlega EPD-vottun (Environmental Product Declaration), sem staðfestir lægra kolefnisspor endurunna plastsins sem notað er í framleiðsluna.

Þetta framtak er liður í breiðari viðleitni Skeljungs til að draga úr umhverfisáhrifum í starfsemi sinni og styðja við hringrásarhagkerfið. Þó að breytingar á umbúðum séu aðeins einn þáttur í heildaráhrifum fyrirtækisins, þá endurspegla þær ábyrgð og vilja til umbóta á fleiri sviðum.

„Endurunnið plast sem er meðhöndlað innanlands er ekki aðeins vistvæn lausn – það er líka skýrt dæmi um hvernig hringrásarhagkerfið getur virkað í reynd. Með þessum brúsum getum við minnkað kolefnisspor okkar og stutt við íslenskan endurvinnsluiðnað á sama tíma. Þetta er lítið skref, en í rétta átt – og eitt af mörgum sem við stefnum á að taka.“
— Kristinn Gunnarsson, verkefnastjóri markaðsmála og meðlimur í sjálfbærninefnd Skeljungs