Áburður

Tilkynning frá Skeljungi hf. 12.júní 2013

Komið hefur í ljós að áburður frá breskum birgja Skeljungs (áburðarframleiðandanum Origin) hafi innihaldið meira magn kadmíums en leyfilegt er. Skeljungi barst tilkynning frá Matvælastofnun (MAST) þessa efnis síðdegis í gær. Kemur þetta Skeljungi mjög á óvart.

Íslenskar reglur um magn kadmíums, sem eru með þeim strangari sem þekkjast, heimila aðeins áburð með kadmíum-innihaldi undir 50 mg/kg P. Sýni sem tekin voru á vegum Matvælastofnunar reyndust innihalda of mikið magn kadmíums – eða á bilinu 53 til 111 mg/kg P.

Skeljungur fékk fyrr á árinu niðurstöður mælinga óháðrar rannsóknarstofu í Bretlandi (NRM) um að kadmíum-magn fosfórs sem nota skyldi í áburð fyrir Íslandsmarkað í ár væri langt innan leyfilegra marka.

NRM mældi kadmíum-magn áburðar frá Skeljungi einnig á síðasta ári og reyndust niðurstöðurnar þá vera í fullu samræmi við sjálfstæðar sýnatökur og mælingar Matvælastofnunar, þ.e. magn kadmíums reyndist langt innan viðmiðunarmarka. Ósamræmið í niðurstöðum mælinganna nú kemur Skeljungi því í opna skjöldu.

Skeljungur hefur dregið lærdóm af samskonar máli sem upp kom árið 2011 og leggur því mikla áherslu á að upplýsa með skjótum hætti alla þá aðila sem málið varðar. Tilkynning hefur þegar verið send til viðskiptavina sem keyptu umræddan áburð. Fyrirtækið mun veita nánari upplýsingar um málið um leið og þær berast og grípa til viðeigandi aðgerða í samráði við Matvælastofnun.

Ekki þarf að fara í grafgötur um að Skeljungur lítur þetta mál afar alvarlegum augum og biðst velvirðingar.

Virðingarfyllst,
Lúðvík Björgvinsson, framkvæmdastjóri fyrirtækjasviðs Skeljungs.

Sprettur er tilbúinn fjölkornaáburður sem framleiddur er í Vestur-Evrópu fyrir Skeljung.

Sjá verðlista 2013 hér

Nánari upplýsingar veita;

Nafn   Staðsetning Símanúmer Netfang
Einar Guðmann Örnólfsson   Vesturland 862 5075 einargudmann@emax.is
Unnsteinn Hermansson   Dalir 8641416 unnsteinnh@simnet.is
Eymundur Þórarinsson   Bændaþjónustan, Skagafirði 892 8012 saurbaer@saurbaer.is
Þorgils Sævarsson   Skeljungur hf. Akureyri 444 3160 / 840 3162 duddi@skeljungur.is
Þórarinn Ingi Pétursson   Eyjafjörður 899 3236 grytubakki@gmail.com
Hallgrímur Hallsson   Þingeyjarsýslur 464 1067 / 893 4094 hallgrimurh@simnet.is
Helgi Haukur Hauksson   Austurland 865 1717 helgi@isbu.is
Lúðvík Bergmann   Búaðföng, Hvolsvelli 487 8888 / 896 9980 bu@bu.is
Guðmundur Björnsson   Skeljungur hf.  840 3061 / 444 3000 stge@skeljungur.is
Stefán Gestsson   Skeljungur hf. 444 3074 / 840 3074 stge@skeljungur.is
Þjónustuver Skeljungs   Skeljungur hf. 444 3100 pantanir@skeljungur.is



Leit

Leitarvél

Þú ert hér: Fyrirtæki » Áburður
Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi